Skólanámskráin byggir á aðalnámsskrá grunnskóla og er nánari útfærsla skólans á þeim markmiðum sem hún setur grunnskólum. Hún á að spegla skólastarfið í Langholtsskóla eins og það er, sérkenni skólans og aðstæður. Námskráin er því eins og skólastarfið í Langholtsskóla í sífelldri þróun og tekur í framtíðinni breytingum samkvæmt því.
Almennan hluti námskrárinnar er að finna í handbók skólans. Kennsluáætlanir breytast frá ári til árs og innihalda upplýsingar um það námsefni sem notað er hverju sinni, tímaáætlanir, verkefni og hlutfall mismunandi þátta námsgreinarinnar í námsmati. Í námskrárhlutanum er svo að finna þau markmið sem við sækjumst eftir að ná í mismunandi greinum og árgöngum.


