Meginmarkmið mötuneytisins er að bjóða hollan og næringarríkan mat í samræmi við stefnu Manneldisráðs.
Eingöngu er boðið upp á áskrift, þ.e. matur alla daga vikunnar. Skólinn sendir greiðsluseðla fyrirfram fyrir hvern mánuð en fyrsti seðillinn nær yfir ágúst og september.
Greiðsluseðill verður sendur heim til foreldra fyrir hver mánaðarmót. Gjalddagi verður 5. hvers mánaðar. Ef ekki er greitt fyrir eindaga, 15. hvers mánaðar, verður afgreiðsla stöðvuð. Áskrift endurnýjast sjálfkrafa um hver mánaðarmót ef henni hefur ekki verið sagt upp skriflega á skristofu fyrir 15. hvers mánaðar.
Hádegisverður í áskrift kostar 250 kr. frá og með 1. febrúar 2009.
Mánaðargjald er þá 5.000 kr.
Boðið er upp á:
• Hádegisverð í áskrift fyrir alla nemendur og starfsmenn skólans.
• Lausasala: brauð, ávexti, mjólk og safi fyrir 8. -10. bekk í frímínútum kl. 9.30-9.50.
Nemendur sem ekki kaupa máltíðir í mötuneytinu borða nesti sitt þar í hádeginu. Vatn er borið fram með matnum.


