Langholtsskóli við Holtaveg

Mánudagur, 6. september 2010
Leturstærð
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Námsmat

Skólanámskrá - Námsmat

Námsmat

Í Langholtsskóla er leitast við að hafa námsmat fjölbreytt. Markmiðið er að vægi prófa fari minnkandi og vinna nemenda verði metin jafnt og þétt. Vinna nemenda hefur þá meiri áhrif á einkunnir þeirra og umsagnir. Þannig teljum við að komið verði til móts við einstaklingsmiðað nám. Námsmatið lýtur að samvinnu kennara, nemenda og foreldra og að deila reynslu og þekkingu.
Hlutverk kennara er að gera nemendur ábyrga fyrir eigin námi, markmiðssetningu og vinnulagi. Í upphafi námsannar þurfa nemendur að vita hvernig metið er og hvað, hvort sem um ræðir; próf, sjálfsmat, jafningjamat, kennaramat og foreldramat eða sambland af þessu öllu. Fjölbreytt námsmat stuðlar að því að heildstæð mynd fáist af þekkingu, færni og framförum hvers og eins.
Nánar um námsmat í kennsluáætlunum.