Langholtsskóli við Holtaveg

Mánudagur, 6. september 2010
Leturstærð
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Foreldrarölt

Foreldrar - Foreldrarölt

Foreldrarölt

Það hefur skapast hefð að foreldrar barna í öllum árgöngum skólans, gangi um
hverfið á föstudagskvöldum á veturna. Hér má sjá listann yfir skipulagið fram á vor.
Mæting í röltið er valfrjálst og það er velkomið að ganga fleiri eða önnur
föstudagskvöld henti það betur.
Þeir foreldrar sem gengu fyrir jól og voru á haustlistanum eru ekki aftur
skráðir, en eru að sjálfsögðu velkomnir að rölta með að eigin frumkvæði.
Athugið, að aðeins annað foreldri barns þarf að rölta, það er ekki ætlast
til að báðir foreldrar fari.

Foreldrar hittast kl. 22:00 í sjoppunni, Sunnutorgi á Langholtsvegi.
Þar kynnið þið ykkur og fáið afhenta tösku með bók, endurskinsmerkjum og
ýmsu smálegu sem gæti nýst ykkur við röltið.
Fínter til að rölta í c.a 1,5 - 2 tíma.
Passa þarf upp á að skila töskunni í sjoppuna annað hvort að göngu lokinni
eða fyrir næsta föstudagskvöld.
Bókin í töskunni er ætluð til að skrifa frásögn af göngu kvöldsins, t.d.
hvaða leið var gengin og hverjir mættu.
Annan hvern föstudag er opið í Þróttheimum til kl 23 og þá er upplagt
aðkíkja við þar og heilsa upp á krakkana.
Vakni einhverjar spurningar varðandi röltið er hægt að hafa samband við
Hörpu Sól. Másdóttir í stjórn foreldrafélagsins.
harpa.s.masdottir@gmail.com